Hafðu samband

ÞAÐ GETUR VERIÐ VANDASAMT AÐ VELJA RÉTTAN VERKTAKA ÞEGAR FARA Á Í FRAMKVÆMDIR

  1. Við komum til þín, skoðum með þér verkefnið og gerum nákvæmar kostnaðaráætlanir með verklýsingum og öðrum gögnum án skuldbindinga.
  2. Þegar við gerum kostnaðaráætlun viljum við skýra frá öllum verkþáttum og kostnaði strax í upphafi. 
  3. Við komum ekki með óraunhæft verðtilboð og við mælum ekki með lélegum bráðabyrgðalausnum. 
  4. Markmið okkar er að vera traust og heiðarlegt fyrirtæki.  Við stöndum við það sem við segjum í upphafi en stílum ekki á aukaverk og bakreikninga.
  5. Við stefnum ekki á að vera ódýrastir, heldur viljum við að viðskiptavinir okkar greiði sanngjarnt gjald fyrir vandaðar og faglegar lausnir.
  6. Við höfum aldrei viljað stæka fyrirtækið umfram getu og höfum vaxið jafnt og þétt.  Þannig höfum við staðið traustum fótum sama hvernig árar.

Þessi markmið okkar hafa skilað því að við eigum fasta trausta viðskiptavini sem velja að eiga viðskipti við okkur ár eftir ár.   Ef þetta eru kostir sem þú telur henta fyrir þín viðhaldsmál þá endilega vertu í sambandi við okkur.

Nánari upplýsingar:
verkvik@verkvik.is

  • Verkefni og viðhald hjá Rio Tinto Alcan
    Verkefni og viðhald hjá Rio Tinto Alcan Eins og venjulega er allt búið að vera á fullu hjá Alcan í Straumsvík og höfum verið að vinna ýmis verkefni fyrir þá sem snúa að viðhaldi. Hafa steypuviðgerðir verið uppistaðan í þeim verkefnum nú ásamt því að reisa skýli við svo kallaðan hellistól sem er staðsettur á milli kerskála 2 & 3. Það verkefni kallaði á steypuvinnu, járnsmíðavinnu, smíðavinnu ofl. en þetta var lítið mál þar sem Verkvík-Sandtak hefur fagmenn á öllum þessum sviðum sem og fleirum í vinnu hjá sér. Byrja þurfti á að steypa gólf upp á nýtt þar sem steypan var mjög illa farin. Járnagrindin var…
  • Norðurál - Prófanir á þurrísblæstri
    Norðurál - Prófanir á þurrísblæstri Tæringarvandamál eru sérsvið hjá Verkvík-Sandtak og á dögunum vorum við að gera prófanir í samstarfi við Norðurál á Grundartanga. Var verið að gera prófanir með þurrísblástur á afsogsrörum hjá þeim. Þessi hluti rörana er staðsettur inn í kerskálum alveg við kerin og því er æskilegt að losna við sem mest ryk. Þetta kallaði á nýja nálgun í staðin fyrir sandblástur. Farið var í málið og var ákveðið að gera prófanir á blæstri þar sem blástursmiðillinn er þurrís í stað sands. Blástur með þurrís gerir það að verkum að ísinn gufar upp þegar hann lendir á yfirborðinu þannig að einungis óhreindi…
  • Búðarhálsvirkjun - sandblástur og yfirborðsmeðhöndlun
    Búðarhálsvirkjun - sandblástur og yfirborðsmeðhöndlun   Á dögunum vorum við fengnir til að fara og vinna verkefni við Búðarhálsvirkjun. Þar var búið að setja upp hluti sem að átti eftir að yfirborðsmeðhöndla og var farið með sandblásturs- og málningarbúnað að Búðarhálsvirkjun til að leysa málið. Mikil bleyta var á svæðinu og gerði það verkið töluvert erfiðara heldur en það sýndist vera í upphafi. Settar voru upp flóðavarnir og dælur til að dæla vatni í burtu sem kom utanfrá inn í rýmið þar sem átti að vinna. Allur búnaður sem þurfti var til þannig að þetta vandamál leystist fljótt og örugglega og urðu tafir sökum vatnsleka…
  • Álverið í Straumsvík - nóg að gera.
    Álverið í Straumsvík - nóg að gera. Mörg verkefni voru unnin fyrir Álverið í Straumsvík (Rio Tinto Alcan) en Verkvík-Sandtak var þeim innan handar í mörgum verkefnum og má þar á meðal nefna, steypu á plani við olíustöð, uppsetningu á árekstrarvörnum, uppsetning á þjónustu stiga fyrir brúkrana, smíði á nýju stjórnhúsi í steypuskála ofl. ofl.  Einnig höfum við verið að vinna með Héðni að ýmsum verkum vegna stækkurnar verkefni ISAL sem nefnist IPU (ISAL Production Upgrade) þar á meðal eru styrkingar á steyptum undirstöðum við ker. Þetta er gert þannig að þau þoli aukið álag sem fylgir aukinni framleiðslu. Einnig var Verkvík-Sandtak fengið til að sandblása og…
  • Endurvarpsstöð Mílu á Háfelli
    Endurvarpsstöð Mílu á Háfelli Míla hafði samband við okkur varðandi endurbætur á endurvarpsstöð sem þeir starfrækja á toppi Háfells, en þetta er á Suðurlandi stutt frá Vík í Mýrdal. Steypan utan á húsinu var farinn að láta á sjá enda mislynd veður á þessum stað. Húsið var hreinsað af allri málingu með sandblæstri og síðan sett ný múrþekja yfir alla steypta fleti. Þurfti einnig að endursteypa þakkant á öðrum gafli húsins en hann var orðinn töluvert skemmdur. Hreinsa þurfti þak með háþrýstiþvotti og setja nýja steypukápu á þakið. Í þessu verki kom góður tækjabúnaður af notum en aðgengi að húsinu er mjög slæmt og…
  • Blöndulína viðgerðir á undirstöðum
    Blöndulína viðgerðir á undirstöðum Enn og aftur vorum við fengnir nú í sumar til að endursteypa og gera við undirstöður undir háspennulínu fyrir Landsnet.   Nú vorum við fyrir norðan á milli Varmahlíðar og Húnavers yfir Vatnsskarð.  Eins og venjulega er víða torfært að möstrunum sem bera uppi línuna og því þurfti að notast við fjórhjól og breyta jeppa til að komast að þeim.  Mikið er lagt upp úr að gróður og umhverfi raskist sem minnst.   Oftar en ekki þarf að brjóta og fjarlægja allar undirstöðurnar sem halda raflínumöstrumum uppi enda steypan orðin mjög skemmd.  Þetta eru tæknilega flókin verk og höfum við á undanförnum…
  • Endurvarpsstöð á Reynisfjalli
    Endurvarpsstöð á Reynisfjalli   Laga þurfti endurvarpsstöð á Reynisfjalli fyrir ofan Vík í Mýrdal en aðgengi að henni er mjög erfitt en keyra þarf upp brattan slóða fyrir ofan bæinn sem er eingöngu fær fjórhjóladrifs bílum. Húsið var tekið og sandblásið og síðan sett ný múrþekja utan á það til að verja það fyrir vatni og vindum. Nota þurfti öfluga dráttarvél til koma sumum tækjunum upp þar sem slóðinn upp fjallið er svo þröngur.  
  • Viðhald á brú yfir Þorskafjarðará
    Viðhald á brú yfir Þorskafjarðará Í vor var boðið út viðhald á brú yfir Þorskafjarðará í Þorskafirði. Brúinn er staðsett stutt frá Bjarkarlundi og er norðan meginn í Breiðafirðinum. Stórir burðarbitar sem eru undir brúnni voru farnir að ryðga og þurfti að sandblása þá og endurnýja tæringarvernir.   Bitarnir voru fyrst háþrýstiþvegnir og síðan Sandblásnir.   Svo voru þeir zink-grunaðir, húðaðir með epoxy þykkmálningu og loks lakkaðir með níðsterku polyurethan lakki. Smíðaður var sérstakur vinnupallur á hjólum sem hægt var að festa undir brúnna til að einfalda verkið, en hann reyndist mjög vel og er gott dæmi um fjölmargar lausnir sem starfsmenn Verkvík-Sandtak hafa búið til í…
  • Landsvirkjun - Steingrímsstöð endurbætur
    Landsvirkjun - Steingrímsstöð endurbætur Frá því í vor hefur Verkvík – Sandtak unnið að endurbótum á árloku mannvirkjum við Steingrímsstöð , fyrir Landsvirkjun . Verkefnið skiptist niður á tvö ár og var fyrri helmingurinn unnin í sumar og seinni verður unnin sumarið 2012. Felst verkefnið í að setja niður vinnulokur fyrir framan tvær árlokur sem stjórna vatnsstreymi úr Þingvallavatni í Sogið. Ein loka er tekinn hvort sumar þannig að hægt sé að hafa aðra lokuna í rekstri á meðan unnið er við hina.  Lokurnar eru teknar upp og fluttar á verkstæði Verkvík-Sandtak við Rauðhellu 3 þar sem stál í lokuskildinum er endurnýjað og aðrar…
  • Endurvarpsstöð á Þrándarhlíðarfjalli
    Endurvarpsstöð á Þrándarhlíðarfjalli   Á Norðurlandi nánartiltekið innarlega í Skagafirði er Þrándarhlíðarfjall sem er tæplega 1000m yfir sjávarmáli. Á toppnum á því er Míla með endurvarpsstöð sem er notuð fyrir síma og útvarp. Þegar þurfti að fara í viðhald á húsinu var haft samband við Verkvík-Sandtak. Gera þurfti við húsið að utan og laga þakið á því þar sem það var farið að leka. Stór trefjaplast hlíf er yfir sendum en þarna uppi er vetur í tæplega 10 mánuði á ári. Farið var á staðinn og húsið tekið út og síðan beðið eftir því að voraði. Þá var farið og húsið sandblásið að…
  • Endurbætur á Straumsvíkurhöfn
    Endurbætur á Straumsvíkurhöfn Rio Tinto Alcan og Hafnarfjarðarhöfn sömdu við okkur um endurbætur á höfninni í Straumsvík í sumar og eru þær endurbætur nánast búnar. Skipta þurfti um kanttré á öllum hafnarkantinum ásamt því að brjóta þurfti upp steypu og endursteypa hluta af honum. Skera þurfti í burtu festingar sem héldu gamla kanttrénum og kjarnabora fyrir nýjum. Einnig voru gamlir neyðarstigar teknir í burtu og nýir og fleiri stigar settir í þeirra stað. Stigarnir voru smíðaðir í á verkstæðinu okkar við Rauðhellu í tvennulagi og síðan settir saman um leið og þeir voru settir upp. Þarna kom sér vel að vera vel tækjum…
  • Viðgerðir á Þambárbrú
    Viðgerðir á Þambárbrú Fyrr í sumar samdi Vegagerðin um viðhald á brú yfir Þambá við Þambárvelli. Þambárvellir eru við Bitrufjörð sem er staðsettur á norðvestur hluta landsins. Var kominn tími á viðhald á brúnni sem er steinsteypt. Farið var með efni og tæki og vinnupallar settir upp til að auðvelt væri að vinna verkið en gólfið í brúnni er í töluverðri hæð yfir ánni sem einfaldaði ekki vinnupalla smíðina. Þegar vinnupallarnir voru klárir var brúin háþrýstiþvegin og farið var í múrvinnu í beinu framhaldi. Endursteypa þurfti hluta af burðarfótunum þar sem hluti þeirra var töluvert skemmdur en steypuna þurfti að fá senda frá…
  • Viðhaldsverkefni á Steingrímsstöð
    Viðhaldsverkefni á Steingrímsstöð Landsvirkjun samdi við okkur um mjög stórt viðhaldsverkefni á Steingrímsstöð.  Verkið er mjög umfangsmikið og verður unnið nú í sumar og svo sumarið 2012.  Verkið fer vel af stað en það verður unnið að hluta til á verkstæði okkar að Rauðhellu 3.  Samstarfsaðilar okkar í verkinu eru Vélsmiðja Suðurlands og Köfunarþjónustan.
  • Steypugryfja hjá Alcan
    Steypugryfja hjá Alcan Um daginn vorum við fengnir til að fjarlægja stóran steyptnan vegg úr steypugryfju hjá Riotinto Alcan í Staumsvík.  Þar sem loka þurfti framleiðslulínunni meðan á framkæmdum stóð var afar knappur tími gefin til verksins.  Unnið var á 12 tíma vöktum allan sólahringin í 6 daga við frekar erfiðar aðstæður.  Verkið stóðast áælun og var álsteypuofn ræstur samkvæmt áætlun.

Allar fréttir